Grasrótin


Nýliðinn
janúar 27, 2008, 3:55 am
Flokkað undir: Uncategorized

Stundum er bara best að byrja upp á nýtt og losa sig við gömlu síðuna sem hvort eð enginn fer inn á lengur. Svo verða allir svo forvitnir “Hei Hildur er komin með nýtt blogg, best að kýkja-heilkennið”. Þannig er það. Böggandi samt að þurfa að fara að setja inn alla gömlu tenglana og þessháttar vesen, ætli maður geri það samt ekki.

Fyndið samt með suma hluti. Sumir hlutir eru einfaldlega þannig að þeir hitta bara gjörsamlega í mark hjá manni og það getur verið á ýmsa vegu. Ein vegan er sú að hlutur eða fyrirbæri er þeirri náttúru gædd að það hefur endalausan “aðhláturskvóta” eða það að maður getur hlegið endalaust að viðkomandi fyrirbæri. Eitt af mínu uppáhalds er orð sem ég heyrði í fyrsta skiptið núna í dag. Fyrst hélt ég að ég hefði heyrt vitlaust eins og ráð gera fyrir en svo var ekki. Orðið var “brjóstaþoka”. Um stund hélt ég að ég yrði ekki eldri, var eins og álfur út úr hól, missti andlitið og allur sá pakki…svo kom hláturinn og hann varir enn.
Brjóstaþoka!?
Manneskjan sem afmeyjaði mig í þessu orði var vinkona mín sem varð nýlega móðir og eignaðist hún gullfallegan dreng fyrir mánuði síðan. En eins og er títt með nýbakaðar mæður og fólk sem er mikið í kringum lítil börn þá fer það að taka upp á áhveðnu háttarlegi. Háttarlagi sem ekki er okkur hinum sérlega aðgengilegt. Þessir einstaklingar taka upp á því m.a. að tala sérkennilegt mál og um mis áhugaleg málefni (frá þeim barnlausu séðum).
Þetta áhveðna háttarlag ætla ég að kalla brjóstaþoku þrátt fyrir að brjóstaþokurfólkið skilgreini það hugtak á aðra vegu. En “barnalands skilgreiningin” er sú að nýbakaðar mæður verði varar við svo kallaða brjóstaþoku meðan þær eru með barn á brjósti og lýsir hún sér á þá vegu að konurnar verð utan við sig og gleymnar á meðan brjóstagjöf stendur.
Jájá gott og blessað og heilagur sannleikur. Nú prófaði ég áðan að “googla” áðurnefnt orð. Niðurstöður voru einmitt þær sem ég ég átti von á, tenglar inn á bloggsíður mæðra þar sem þær jússast yfir því hvað þær hafa gleymt hinu og þessu en bæta því svo við að þarna hafa hin margrómaða brjóstaþoka verið að verki.
Jæjja fyrst að þetta virtist vera eitthvað sem allar mæður sem fæti sínum hafa stigið inn á barnaland könnuðust við. Þá gerði ég ráð fyrir því að fræðileg skýring á fyrirbærinu lægi á fræðilegum vef eins og doktor.is. Þegar ég leitaði að orðinu þar gekk ég steinvegg. Ekkert, núll, zero, blank. Ekkert um brjóstaþoku.
Brjóstaþoka er greinilega einhverskonar krúttkynslóðar kerlingarbækur og bókasafn þeirra er barnaland.is og þið vitið öll hvað fyrirfinnst þar. Ráð sem ég gef barnalandskellum er að slökkva á tölvunni og kýkja í kaffi til mömmu eða vinkvenna og vola í þeim um það að barnið standi í rúminu eða hvort það ætti að borða matarkex. Talið við lifandi fólk, það er heilbrigast.
Mmmhehehehehe…..brjóstaþoka!?

Annað sem hefur ótakmarkaðan “aðhláturskvóta” er fyrirbæri líkt og
- Omega kristilega sjónvarpsstöð
- lolcats
- þessi gaur

2169050955_8834aa0d411.jpg


5 Ummæli hingað til
Skrá ummæli

Hehe. Áfram þú.

Ummæli af Drengur

bwahaha þessi umræða um brjóstaþokuna í gær var náttúrulega snilld…bara af því hvernig þú tókst þessu !!! hahah

Ummæli af Elín ósk

Til hamingju með nýju síðuna krúttrassgatið mitt. Ég er samt að velta því fyrir mér að fara á ak um helgina. :( Á Dave Spoon í sjallanum:) (Heitir hann það ekki annars??) Ræði þetta við þig í dag :)

Ummæli af Glóa

jahérnahér.. já.. ég er bara ansi hrædd um að ég sé pínu sammála þér með barnaland.
Jabb, ég er ein af þessum sem ákvað að kíkja á bloggið þitt, og hyggst gera það aftur.
Gaman að þessu.

Ummæli af Lína Rut

já alltaf lærir maður eitthvað nýtt! Greinilegt að hlutverk barnalands er ásamt mörgu öðru að dreifa nýyrðum..En gaman að kíkja á síðuna þína, geri það sjálfsagt oftar í framtíðinni, hver veit nema hún nái að takmarka eitthvað þann tíma sem fer í að taka allskonar tilgangslaus próf á Facebook??:)

Ummæli af Jónína




Skrá ummæli
Line and paragraph breaks automatic, e-mail address never displayed, HTML allowed: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>