Grasrótin


Sama og þeir sögðu
mars 18, 2008, 7:41 pm
Flokkað undir: Uncategorized

Hef verið að hugsa um að blogga um dálítið, en þessir voru á undan mér og segja það sem ég vildi sagt hafa.



Hinn vorboðinn: Júróskrímslið
mars 11, 2008, 4:28 pm
Flokkað undir: Uncategorized

Enn og aftur hefur Júróvisjón ekki brugðist væntingum mínum, ef eitthvað er þá stendur keppnin sig með príði. Sú forláta vefsíða er ber nafnið YouTube tók mig með sér í örstutta kynningarferð á þeim tónverkum sem munu príða keppnina í vor. Endilega kýkið á http://youtube.com/results?search_query=Eurovision+Song+Contest+2008&page=1

En hvað væntingarnar varðar, þá voru þær vitanlega engar svo Júróvisjón stóðst þær fyllilega. En þrátt fyrir allt þá er hann svo merkilegur þessi metnaður íslendinga þegar kemur að keppninni, höfum við ekkert lært? Þannig er það nú bara að þegar kemur að undankeppninni hér á landi þá kemst leiðinlegasa og “júróvisjónlegasta” lagið áfram á meðan eina góða lagið situr í súpunni. Reyndar finnst mér við rétt hafa náð að bjarga Dr. Spock og gulu hönskunum frá krumlum júróskrímslisins. Þegar upp er staðið felst mesta skemmtunin í því að hlægja að Júróvisjón menningunni í heild sinni á meðan maður iðar allur af kjánahrolli.

Ég leit aðeins á þau lög sem að munu taka þátt. Þarna á ferð er nokkuð áhugavert fyrirbæri, það lítur út fyrir það að tekist hefur að fanga píkupoppshnakka tónlistarmenninguna í sinni tærustu mynd og það verður að öllum líkindum ríkjandi í ár. Útkoman er líkt og fm957 væri sett í pressukönnu og við myndum drekka soðið af því sem þar kæmist í gegn…svo slæmt er þetta (gæti ímyndað mér að það myndi bragðast eins og 10 kg af hreinu aspartami).

Svo voru finnar þarna á ferð með þokkalegan heví metal, en ég er ekki viss um að þeir komist langt á því að endurtaka Lordíana sína. Samt er þetta lag eins og björgunarkútur í hafi Hiltonismans*.

Þegar upp er staðið eru íslendingar upp til hópa Júróvisjón áhangendur sem vilja vinna keppnina hvað sem það kostar, já hvað sem það kostar. Fyrst þessi óbilandi metnaður er til staðar þá er allt eins gott að senda inn jafn metnaðarfulla einstaklinga í keppnina fyrir okkar hönd og ekki verra að lagið sé eins afkvæmi tveggja júróskrímsla. Því segi ég:

Áfram Júróbandið!

* Hiltonismi: Það er bara þessi hnakka/bjullumenning sem við vitum öll um. Nefnd eftir Paris Hilton, holdgerfingi þessarar menningar. Einkennist af einfaldleika, leti og fávisku. Gerilsneytt öllum persónuleika.



Ekkert um ekkert
mars 4, 2008, 5:02 pm
Flokkað undir: Uncategorized

Af tilviljun villtist ég hér inn og lét slag standa, ætla að blogga. Ég hef séð ýmiskonar blogg sem virðast frekar vera skrifuð í þeim tilgangi einum að skrifa, þetta er eitt af þeim.

Ég var í listasögu áðan og hlustaði á fyrirlestur kennarans um minimalisma, ein hugmynd innan þeirrar stefnu er að láta efnið og eðli þess áhveða lögun sína og form. Sem dæmi að pappírssnifsum væri hrúgað saman í haug (dæmi hver fyrir sig hvort um list sé að ræða).

Þetta er að vissu leyti bloggfærsla sem er eftir þessari minimalisku hugmynd, hún hefur ekkert fyrir fram ákveðið form heldur ræðst það aðeins á því efni sem í hana er lagt. En svo þegar betur er að gáð má sjá að hún fjallar ekki um neitt, heldur aðeins sjálfa sig. Þarna erum við aftur komin í minimalisma þar sem grunnformin og fletirnir þurfa ekki að hafa neina merkingu fyrir áhorfandann.