Flokkað undir: Uncategorized
Af tilviljun villtist ég hér inn og lét slag standa, ætla að blogga. Ég hef séð ýmiskonar blogg sem virðast frekar vera skrifuð í þeim tilgangi einum að skrifa, þetta er eitt af þeim.
Ég var í listasögu áðan og hlustaði á fyrirlestur kennarans um minimalisma, ein hugmynd innan þeirrar stefnu er að láta efnið og eðli þess áhveða lögun sína og form. Sem dæmi að pappírssnifsum væri hrúgað saman í haug (dæmi hver fyrir sig hvort um list sé að ræða).
Þetta er að vissu leyti bloggfærsla sem er eftir þessari minimalisku hugmynd, hún hefur ekkert fyrir fram ákveðið form heldur ræðst það aðeins á því efni sem í hana er lagt. En svo þegar betur er að gáð má sjá að hún fjallar ekki um neitt, heldur aðeins sjálfa sig. Þarna erum við aftur komin í minimalisma þar sem grunnformin og fletirnir þurfa ekki að hafa neina merkingu fyrir áhorfandann.
8 Ummæli hingað til
Skrá ummæli
<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>
Þú ert snilld, lokaverkefnið komið ekki satt?
Ummæli af Dússý mars 4, 2008 @ 5:32 pmEn þessi færsla fylgir klárlega ýmsum reglum og formum sem tungumálið setur okkar, setningafræðilega, málfræðilega og svo framvegis. Ef þú hefðir hrúgað orðum samhengislaust hérna á bloggið þá væri þetta líkt þessum pappasnifsum.
Ummæli af Drengur mars 4, 2008 @ 7:43 pmJá satt, það sem ég var reyndar að meina með blaðrinu var það að efni færslunnar kom tilviljunarkennt og mótaðist án þess að ég hefði fyrirfram ákveðna hugmynd um það sem ég ætlaði að skrifa. En þó studdist ég við fyrirfram ákveðið kerfi tungumálsins og svo framvegis. Má ekki segja að form tungumálsins s.s. setningafræði og málfræði séu álíka og grunnformin þríhyrningur, hringur og kassi, svo er þessu bara raðað saman á ýmsa vegu.
Ummæli af Hildur Ása mars 4, 2008 @ 7:51 pmEn satt að segja var þetta bara lítið hugsuð tilraun til þess að rökstyðja bull, bara svona mér til gamans.
Jú, þetta er eflaust bull
Ummæli af Drengur mars 4, 2008 @ 8:36 pmgaman allavega að sjá þig blogga
veit lítið sem ekkert um minimalisma..
Ummæli af Lína Rut mars 5, 2008 @ 11:12 amvá, þið í ykkar eigin setningarfræðilega heimi greinilega skötuhjúin:)
Ummæli af Jónína mars 5, 2008 @ 10:20 pmVið erum svo samrýmd að það liggur við höfundarréttarlagabroti!
Ummæli af drengur mars 7, 2008 @ 4:07 pmHi, my name is Kniendich and I must write you something ’cause of a italian “meme” .
I don’t understand your language, but I think your blog is really intresting…
Ok, it’s will be a pleasure for me if you will come to my blog… ok ok it’s in italian… but you can speek with me in english ..
So..bye…
Ummæli af Kniendich mars 8, 2008 @ 4:26 pm