Flokkað undir: Uncategorized
Enn og aftur hefur Júróvisjón ekki brugðist væntingum mínum, ef eitthvað er þá stendur keppnin sig með príði. Sú forláta vefsíða er ber nafnið YouTube tók mig með sér í örstutta kynningarferð á þeim tónverkum sem munu príða keppnina í vor. Endilega kýkið á http://youtube.com/results?search_query=Eurovision+Song+Contest+2008&page=1
En hvað væntingarnar varðar, þá voru þær vitanlega engar svo Júróvisjón stóðst þær fyllilega. En þrátt fyrir allt þá er hann svo merkilegur þessi metnaður íslendinga þegar kemur að keppninni, höfum við ekkert lært? Þannig er það nú bara að þegar kemur að undankeppninni hér á landi þá kemst leiðinlegasa og “júróvisjónlegasta” lagið áfram á meðan eina góða lagið situr í súpunni. Reyndar finnst mér við rétt hafa náð að bjarga Dr. Spock og gulu hönskunum frá krumlum júróskrímslisins. Þegar upp er staðið felst mesta skemmtunin í því að hlægja að Júróvisjón menningunni í heild sinni á meðan maður iðar allur af kjánahrolli.
Ég leit aðeins á þau lög sem að munu taka þátt. Þarna á ferð er nokkuð áhugavert fyrirbæri, það lítur út fyrir það að tekist hefur að fanga píkupoppshnakka tónlistarmenninguna í sinni tærustu mynd og það verður að öllum líkindum ríkjandi í ár. Útkoman er líkt og fm957 væri sett í pressukönnu og við myndum drekka soðið af því sem þar kæmist í gegn…svo slæmt er þetta (gæti ímyndað mér að það myndi bragðast eins og 10 kg af hreinu aspartami).
Svo voru finnar þarna á ferð með þokkalegan heví metal, en ég er ekki viss um að þeir komist langt á því að endurtaka Lordíana sína. Samt er þetta lag eins og björgunarkútur í hafi Hiltonismans*.
Þegar upp er staðið eru íslendingar upp til hópa Júróvisjón áhangendur sem vilja vinna keppnina hvað sem það kostar, já hvað sem það kostar. Fyrst þessi óbilandi metnaður er til staðar þá er allt eins gott að senda inn jafn metnaðarfulla einstaklinga í keppnina fyrir okkar hönd og ekki verra að lagið sé eins afkvæmi tveggja júróskrímsla. Því segi ég:
Áfram Júróbandið!
* Hiltonismi: Það er bara þessi hnakka/bjullumenning sem við vitum öll um. Nefnd eftir Paris Hilton, holdgerfingi þessarar menningar. Einkennist af einfaldleika, leti og fávisku. Gerilsneytt öllum persónuleika.
4 Ummæli hingað til
Skrá ummæli
<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>
Ég hef aldrei haft jafn góða samvisku og nú eftir að ákveða að horfa ekki á þessa lokakeppni. Lagið ‘okkar’ í ár er klárlega versta lag okkar frá upphafi og slær t.d. horfðu aftur út hvað það varðar.
Ummæli af Drengur mars 11, 2008 @ 9:51 pmfullkomlega sammála systir góð. besta lagið í allri íslandskeppninni var klárlega lagið hennar Fabulu og það komst ekkert áfram. Íslendingar eru alveg ákveðnir í því að reyna að vinna eftir öllum brögðum með því sérstaklega að hafa svipuð lög og hafa unnið síðustu ár. hvernig væri að vera doldið frumlegir og senda ekki einhvern athyglissjúkan hálfvita út. Júróbandið er samt svo ógissla hresst skilluurruu
Ummæli af Glóa mars 12, 2008 @ 10:03 amHi, my name is freespiritman, I am Italian and they are to here to leave you
Ummæli af freespiritman mars 12, 2008 @ 2:59 pma regard. I don’t understand your language, but doesn’t care, if want can reciprocate the visit, are the welcome one!
Freespiritman
http://vesen.hydra.is/teikni/myndir/1205449591.151.png
Ummæli af Hildur Ása mars 13, 2008 @ 11:08 pm