Flokkað undir: Uncategorized
Lífsmark? Er það staðurinn sem maður endar á í lífsgæðakapphlaupinu? Ekki hef ég hugmynd um það, enda aldrei haft mikið keppnisskap og sést sársjaldan taka sneggri hreyfingar en þegar ég dreg andan. Undantekningarnar eru þá einna helst þær þegar ég brussast eitthvað eða hlussast í klaufaskap mínum.
En þó get ég sagt eitt um lífið. Lífð er fínt. Ég segið fínt því mér finnst það langt frá því að vera frábært þegar maður tekur allt inn í pakkan og ég segi fínt því mér finnst það langt frá því að vera ömurlegt. Þegar upp er staðið kemst ég ávalt að sömu niðurstöðu…að lífið er alveg fínt.
Lífið er nefnilega svolítið eins og einfalt grunnskólareiknidæmi. Ef ég segi að allt það slæma í lífinu sé -100 og allt það frábæra í lífinu sé +100 þá komum við út á núlli sem er hvorki gott né slæmt. Ég segi að hið slæma og góða í lífinu sé jafn há tala þar sem ég leyfi mér að fullyrða að ávallt séu jákvæðar og neikvæðar hliðar á öllu.
Núna í haust upplifði ég það allra vesta sem ég hef nokkurn tíman gengið í gegn um og jafnaðist það engan veginn á við nokkuð annað sem ég hafði áður upplifað. Og ég er enn að ganga í gegnum það og mun gera það út lífið. En þrátt fyrir það hef ég einnig átt frábærar stundir og á ógrynni af frábærum minningum.
Jahh, t í seinustu línunum í kvæðinu Fjallgöngu eftir Tómas Guðmundsson finnst mér skáldið hafa komist vel að orði:
Því hversu mjög sem mönnum finnast,
fjöllin há, ber hins að minnast,
sem vitur maður mælti forðum
og mótaði í þessum orðum,
að eiginlega er ekkert bratt,
aðeins mismunandi flatt.
Frá því að ég var krakki og látin læra þetta utanbókar hjá Erlu kennara í denn hef ég haldið upp á þessar línur og fundist þessi speki hreinn gullmoli og raunar kvæðið í heild sinni.
En að hversdagslegri hlutum og hversdagslegra bloggi. Eitthvað aðhefst maður nú í lífinu annað en velta sér upp úr lífspælingum. Í seinustu viku náði ég þeim miður merkilega áfanga að verða 21 árs gömul. Nú á víst allt aðeins niður á við eftir þetta. En við Drengur gerðum okkur þó dagamun og fórum í okkar fínasta púss og snæddum á ekki ómerkilegri búllu en sjálfri Restaurant Karolínu. Þar sem forrétturinn innihélt humarhala og andalifur, andabringur í aðalrétt og heita súkkulaði tertu og Créme Brulée í eftirrétt.
Ég kláraði blessaða lokaverkefnið mitt fyrir skólann núna á mánudaginn og hefur það verið eintóm hamingja síðan þá. Gríðarlega þungu fargi af manni létt. Reyndar mun ég skella myndinni aftur á trönurnar seinna og fullklára hana og fínpússa. Svo á morgun opnar vorsýningin í skólanum sem verður opin fram á mánudag. Mikill tími og vinna búin að fara í undirbúning og ég mæli eindregið með því að fólk skelli sér. Allaveg ætla mamma og Helga systir að koma að sjá.
Sumrinu verður aftur eitt í Eddu þvottahúsinu líkt og í fyrra. Lýtur út fyrir að þar muni príðis hópur starfa saman. En líkt og árin áður er planið að drífa sig inn á Þórshöfn á dagana síkátu í miðjum júlí. Einnig eru uppi hugmyndir um það að fara í ferð út á nesið langa með bakpoka og tjald nokkrum dögum fyrir helgina kátu.
Krullhildur furðufugl kom til landsins ásamt öðrum farfuglum fyrir skemmtu og hitti mig hér á eyrinni áður en hún flögraði til Þórshafnar. Það var alveg ótrúlega gaman að fá að sjá hana aftur.
Næsta miðvikudag mun ég ganga í gegum mína þriðju útskrift á ævinni. Ég mun útskrifast úr Fornáminu úr myndlistaskólanum. Það er hreint ótrúlegt hver hratt tíminn hefur liðið frá því í haust. Finnst ég rétt vera búin að kynnast þessum snillingum sem ég er með í bekk. Sumir ætla að halda áfram í skólanum, sumir eru að fara til Skotlands (til hamingju Guðrún), og sumir eru að hugsa um að fara í háskólann á Akureyri. Ég er ein af þeim í seinasta flokknum. Ég er að stefna á það að fara í nútímafræði….jájá þá spyrja allir “og hvað er svo það? Ertu að læra um nútímann?” , sjálf nenni ég ekki að svara en skal stytta ykkur sporin í því að afla ykkur sjálf upplýsinga um það. Með því að ýta á þetta komist þið að því. En ef mögulega er fyrir mig á einhvern hátt einhverstaðar hjá einhverjum að læra myndlist samhliða háskólanum, ætla ég að nýta mér það.
Ég er að hugsa um að láta þetta gott heita í bili. Svo er bara spurning hvort fólk muni lesa þessa langloku hjá mér. Skiptir kanski ekki öllu.
En ég er farin að gera eitthvað annað.
Lag líðandi stundar: Mengum Ísland með Svavari Knúti.
1 ummæli hingað til
Skrá ummæli
<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>
Já það er naumast menn opna allar flóðgáttir þá sjaldan þeir láta heyra í sér. Ég er sammála öllu þarna; sérstaklega með útskýringar á nútímafræði.
Comment af Drengur maí 14, 2008 @ 9:12 pm