Flokkað undir: Uncategorized
Ég tek kreppunni fagnandi hendi. Já, fagnandi segi ég. Nú er í vændum tími breytinga, tími þroska…hugvekja. Við höfum sofnað á verðinum, við sofnuðum fyrir framan flatskjáinn okkar í hjólhýsinu sem landkrúserinn okkar dró út fyrir borgarmörkin.
Nú er komin tími til að vakna fólk. Nú er komin tími til að taka ábyrgð…tími til að þroskast. Það er þroskinn sem ég tek fagnandi, það er gott að þroskast og geta sýnt ábyrgð, að vera manneskja.
Hættum vélmennaleiknum, verum fólk og verum við sjálf! Verum fyrst og fremst við sjálf. Hver ert þú?
Vertu sú manneskja!
Gagnrýnið, nöldrið, látið í ykkur heyra…ef sú manneskja sem þú ert fylgir ekki straumnum, þá skaltu ekki fylgja. Ef hún fylgir, fylgdu af heilum hug.
Kreppan er samfélagslegt sygti sem sem er mannkyninu nauðsynleg til að geta haldið áfram nauðsynlegum framförum. Góðærið er búið, tími til kominn að aga sig, nota hugann. Eða öllu heldur er kreppan suða sem sýður burt skítinn í vatninu og gerir það drykkjarhæft.
Nú er tími tiltekta, letin og metnaðarleysið má ekki drepa okkur. Hún á að efla anda okkar og stútfylla okkur metnaði til að betrumbæta allt draslið.
Ein manneskja er nánast án takmarka ef hún lætur straum sinn fljóta yfir allt landslagið. Ekki takmarka ykkur sjálf til að þóknast norminu, viðmiðum og straumum…streymið þangað sem ykkar straumur ber ykkur.
Umfram allt verið þið sjálf, þá munuð þið komast langt áfram en ekki skrefið aftur á bak. Við megum ekki við því á þessum tímum.
3 Ummæli hingað til
Skrá ummæli
<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>
Kreppu handa öllum!
Ummæli af Drengur júlí 26, 2008 @ 12:34 pmheyr heyr!!! Mæli með að þú látir þessi skrif þín berast í blöðin! þetta er eitthvað sem allir ættu að lesa og taka til sín: )
Ummæli af Stína frænka Drengs júlí 26, 2008 @ 12:35 pmHeyrðu ástaryndi. Ætlarðu að kafna ofan í þessum skólabókum eða kannski blogga eitthvað nýtt?
Ummæli af Drengur september 17, 2008 @ 1:16 am